Þjóðarkosning um ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu

- Fyrsta örugga rafræna þjóðarkosningin á netinu.

- Kosning í gegnum heimabanka og vefkerfið Íslendingaval sem tryggir öryggi og nafnaleynd.

Vilt þú að Alþingi samþykki eða synji ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga?

Svarmöguleikar eru:
  • Alþingi samþykki ríkisábyrgð
  • Alþingi synji ríkisábyrgð
  • Tek ekki afstöðu.

Þjóðarkosningu um Icesave lauk 17. desember 2009 kl. 16:30


Kosningaúrslitin eru aðgengileg hér í Excel skrá til frekari úrvinnslu.



Nafnleysi er fullkomlega tryggt í þjóðarkosningu Eyjunnar sem fram fer í örfáum einföldum skrefum. Eftir að aðgangskóðinn hefur verið sóttur í heimabanka tekur aðeins innan við mínútu að kjósa.

  1. Aðgangskóði
    Öllum Íslendingum á kosningaaldri hefur verið úthlutað aðgangskóða í gegnum heimabanka sinn. Hann má finna undir liðnum rafræn skjöl merktan "Íslendingaval". Þegar smellt er á hlekkinn í skjalinu flyst notandinn sjálfvirkt yfir á kosningavefinn.


    Skjámyndir af staðsetningu aðgangskóðans í:

    Sæktu aðgangskóðann sem þú hefur fengið sendan í heimabankann:


    Svona lítur rafræna skjalið með aðgangskóðanum út í heimabankanum:


  2. Lykilorð
    Notandinn er því næst beðinn um að velja sér lykilorð. Velja skal öruggt lykilorð sem auðvelt er að muna. Hægt er að fá nýtt lykilorð ef grunur leikur á að það hafi komist í hendur annarra. Ef lykilorðið tapast er hægt að fá nýjan aðgangskóða sendan í heimabankann.
  3. Kosningavefur
    Eftir að á kosningavefinn er komið er hægt að smella beint á hlekk til að kjósa.
  4. Kjörseðill
    Þegar smellt er á "kjósa" birtist beiðni um rafrænan kjörseðil. Á beiðninni kemur fram hvaða kosning er valin og hvernig kjósandinn er flokkaður í þjóðskrá. Smella þarf á hnappinn "Sækja kjörseðil og fara á kosningarvef" til að kjósa.
  5. Kosið
    Því næst þarf að merkja við einn af þremur svarreitum og styðja því næst á hnappinn "Skila svari" til að skila atkvæðinu.
  6. Kvittun
    Áður en farið er út af kosningavefnum býðst kjósandanum að fá kvittun með svarlykli og eigin vali. Kvittunina má vista í skrá eða prenta hana út. Hana má, ef þörk krefur, nota til að staðfesta að rétt hafi verið farið með atkvæðið við talningu og úrvinnslu svara. Kvittunin inniheldur rafræna undirskrift til að staðfesta uppruna hennar.

Þjóðarkosning

Þjóðarkosningu um Icesave lauk 17. desember 2009 kl. 16:30

Niðurstöður verða kunngjörðar strax í kjölfarið.

Sannreyndu að þitt atkvæði sé í talningunni.

Fylgstu með framvindu kosningarinnar í rauntíma.

Kosningaúrslit í Excel skrá.

Spurt og svarað

Hægt er að senda fyrirspurn á hjalp@islendingaval.is


Leit


Aðrir miðlar